Við bjóðum upp á opna daga í FabLab þar sem allir eru velkomnir að koma og kynnast aðstöðunni okkar og þeim tækjum sem við höfum upp á að bjóða.
Á miðvikudögum kl. 15–17 eru opnir dagar fyrir byrjendur. Þar getur þú fengið kynningu á tækjunum og aðstoð við að stíga fyrstu skrefin í hönnun og framleiðslu.
Á mánudögum kl. 15–17 eru opnir dagar fyrir lengra komna, þau sem hafa sótt námskeið eða eru orðin nokkuð sjálfbjarga, en vilja hafa aðgang að aðstöðunni og stuðning frá okkar bestu mönnum, Stefáni og Flexa.
Fylgist endilega með okkur á samfélagsmiðlum. Þar auglýsum við allt það sem er að gerast hjá okkur t.d. aukaopnanir, lengri opnunardaga og allt það nýjasta sem er í gangi í FabLab.