Fablab Húsavík

Fab Lab Húsavík opnaði að Hafnarstétt 1 í lok árs 2021. Smiðjan er hluti af samstarfsneti viðurkenndra Fab Lab smiðja um allan heim og búin fullkomnum tækjabúnaði og tölvum sem efla færni notenda til nýsköpunar og skapa samkeppnishæfara samfélag. FabLab Húsavík er opið almenningi, fyrirtækjum, frumkvöðlum og nemendum alla virka daga samkvæmt auglýstri dagskrá. 

Markmið FabLab Húsavík er: 

  • Að skapa vettvang fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf í atvinnulífi á nærsvæði Húsavíkur 
  • Að efla samkeppnishæfni fyrirtækja, nemenda og menntastofnanan í nærsamfélagi 
  • Að styðja við starfsemi frumkvöðlaseturs og þekkingarklasa á Húsavík 

 

Um Fablab Húsavík

Fab Lab Húsavík er rekið innan Hraðsins miðstöðvar nýsköpunar og staðsett á Stéttinni.  

Þjálfun og fræðsla í Fab Lab smiðjum hefur það markmið að undirbúa notendur fyrir störf framtíðarinnar. Í kjölfar mikilla tæknibreytinga og sjálfvirknivæðingar undanfarin ár hafa umbyltingar átt sér stað víða í samfélaginu. Þessar framfarir í tækni hafa verið kenndar við fjórðu iðnbyltinguna og stjórnvöld um allan heim keppast nú við að efla menntun og færni fólks á þessu sviði til að auka verðmætasköpun í samfélaginu. 

Á Íslandi er hlutfall þeirra sem eru menntaðir á sviði vísinda, tækni, verkfræði og stærðfræði (STEM greina) töluvert lægra en í öðrum Evrópulöndum og því miða áherslur íslenskra stjórnvalda að því að efla færni fólks í þeim til að geta mætt þessari þróun. FabLab smiðjur eru mikilvægt tæki menntastofnana til að efla færni í þessum greinum og Fab Lab Húsavík á í góðu samstarfi við öll skólastig á svæðinu og er samstarfsaðili fræðslunetsins STEM Húsavík. 

Opnir dagar

Við bjóðum upp á opna daga í FabLab þar sem allir eru velkomnir að koma og kynnast aðstöðunni okkar og þeim tækjum sem við höfum upp á að bjóða.

Á miðvikudögum kl. 15–17 eru opnir dagar fyrir byrjendur. Þar getur þú fengið kynningu á tækjunum og aðstoð við að stíga fyrstu skrefin í hönnun og framleiðslu.

Á mánudögum kl. 15–17 eru opnir dagar fyrir lengra komna – þau sem hafa sótt námskeið eða eru orðin nokkuð sjálfbjarga, en vilja hafa aðgang að aðstöðunni og stuðning frá okkar bestu mönnum, Stefáni og Flexa.