Viltu vera Hraðari?

Vantar þig vinnurými?

DagsGestur

Aðstaða í einn dag. 
Ertu á ferðinni og vantar aðstöðu til að sinna vinnunni á Húsavík í stuttan tíma? Í Hraðinu er hægt að kaupa aðgang að vinnuborði, næðisrými og kaffiaðstöðu í einn dag í senn. Finndu þér bara borð við hæfi og kveiktu á tölvunni, þá ertu kominn í samband við allt sem þarf! Innifalið er aðgengi, fullbúnum fundarherbergjum, að FabLab Húsavík eftir auglýstri dagskrá, þráðlaust net, prentari og alls konar skemmtilegt. 

VikuGestur

Aðstaða til skemmri tíma, í allt að viku í senn. 
Hraðið býður upp á vikuáskrift að vinnuaðstöðu í opnu rými með aðgengi að fundaherbergjum, næðisrýmum og kaffiaðstöðu. Innifalið er aðstaða allan sólarhringinn, aðgengi að FabLab Húsavík eftir auglýstri dagskrá, þráðlaust net og prentari. Einnig býðst þér eins mikið kaffi og þig lystir og skemmtilegur félagsskapur!  

Deili Hraðari

DeiliHraðari er fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem þrufa að hafa aðgengi að lausum borðum í Hraðinu alla daga ársins, allan sólarhringinn. Innifalið er aðgengi, þegar laust, að næðisrýmum, fundaherbergjum, kaffistofu, setustofu, þráðlausu neti og prentara. Einnig þátttaka í suðupotti nýsköpunar á Húsavík og aðgengi að fullkominni stafrænni smiðju eftir auglýstri dagskrá. Hægt er að sníða áskriftina að þörfum fyrirtækja sem þurfa aðgengi fyrir fleiri en einn starfsmann. 

Hraðari

Heimagangur hentar þeim sem vilja hafa fasta aðstöðu í opnu rými og eigið skrifborð. Innifalið er aðgengi að næðisrýmum, fundaherbergjum, frumkvöðlarými (þegsar laust), kaffistofu, setustofu, þráðlausu neti og prentara allan sólarhringinn allan ársins hring. Einnig fylgir aðgengi að FabLab Húsavík eftir auglýstri dagskrá og þátttaka í spennandi samfélagi nýsköpunar á Húsvík.    

Sér Hraðari

Lokuð skrifstofa fyrir fyrirtæki eða einstaklinga með aðgengi fundaherbergjum, frumkvöðlarými, stafrænni smiðju, setustofu og kaffistofu. Hentar fyrir alla þá sem þurfa eigið rými og mikið næði til daglegrar vinnu.

Fundaraðstaða

Fundaaðstaðan á Stéttinni er mjög fjölbreytt.
Allt frá litlum fjarfundarýmum yfir í sérhæfð teymisvinnu- og fundarými. 

Símaklefinn

Uppáhalds næðisrýmið okkar er breski símaklefinn sem við fengum frá smábænum Halkirk í Norður-Skotlandi. Þar stóð hann í áratugi en gegnir nú nýju hlutverki á Stéttinni þar sem hann er sérstaklega útbúinn fyrir fjarfundi og símtöl. Gamli myntsíminn sem var í honum lenti víst í fjórðu iðnbyltingunni og var skipt út fyrir þráðlaust net og rafmagnshleðslu!

Studio

Stúdíóið okkar er vel tækjum búið með stóru sjónvarpi, tússtöflu, podcast græjum og myndabakgrunnum.

Frystiklefinn

Frumkvöðlarýmið Frystiklefinn ber nafn með rentu, enda hýsti hann áður frosna lambaskrokka hjá Sláturhúsi KÞ. Frystiklefinn er fullbúinn nýjustu tækni til fjarfunda og kynninga. Verð fyrir þá sem ekki eru að leigja í Hraðinu: 1/2 dagur – 25.000.- Heill dagur – 40.000.-

Saltvík

Saltvík hentar auk þess sem fundaaðstaða fyrir allt að 14 manns. Nafnið Saltvík var eitt sinn heiti fiskverkunarhússins að Hafnarstétt 3, sem er í dag hluti Stéttarinnar.

Planið

Glerbygging Stéttarinnar er í daglegu tali kölluð Planið. Þar er notalegt sófahorn með kamínu. Á Planinu er hægt að halda stærri móttökur og viðhafnir. Þar sem Planið stendur í dag var áður líflegt atvinnusvæði síldarsöltunar og dregur byggingin nafn sitt af því.

Þingey

Í Þingey getur þú komið þér þægilega fyrir í hægindastól og lokað að þér fyrir styttri fjarfundi eða símtöl.

Klemma

Klemma er ör skrifstofan okkar. Hún rúmar einn einstakling og er sérstaklega útbúin fyrir fjarfundi. Í Klemmu er góður stóll og lítið borð með skjá, lyklaborði og mús.

Ram

Ram er samskonar næðisrými og Þingey. Hér er notalegur hægindastóll og lampi og gott að loka að sér fyrir símtöl og styttri fjarfundi.

Loftið

Lofið er notalegt og vel búið fundarrými í Langaneshúsi á efri hæð. Rýmið hentar einstaklega vel fyrir minni fundi, vinnustofur eða hugmyndavinnu í rólegu og þægilegu umhverfi.

Það er útbúið skjá, fjarfundabúnaði og góðri aðstöðu fyrir 6–8 manns.