Leikjadjamm Húsavík

Days
Hours
Minutes
Seconds

18.19. september 2026 – Hraðið miðstöð nýsköpunar á Húsavík

Langar þig að búa til leik? Langar þig að kynnast leikjahönnun? Langar þig að kynnast öðrum sem hafa áhuga á leikjagerð?

Ertu 15–25 ára og forvitin um leikjagerð, nýsköpun eða hvernig leikjavæðing getur nýst í alls konar hugmyndavinnu?

Saman gerið þið tölvuleiki, borðspil og jafnvel útileiki!

Já þú getur verið með!

Leikjadjammið

Á leikjadjammi safnast fólk saman úr ýmsum áttum og býr saman til leik eða leikjaupplifun frá grunni.

Fólkið

Fólk mætir saman eða kynnist á staðnum, fær hugmyndir og framkvæmir hana svo á tveimur dögum.

Reynsla

Það þarf reynslu úr öllum áttum til að búa til leiki. Fólk með skapandi hugsun, rithöfundar, teiknarar, grafískir hönnuðir, tónlistarfólk og forritarar vinna saman.

Við hjálpum ykkur

Það geta allir búið til leiki, líka þú! Við hjálpum ykkur af stað og gefum ykkur ráð um hversu stór hugmyndin getur verið til að þið náið að sýna hana í lok laugardags.

Dagskrá

Föstudagur 18. september

12:30 Mæting í Hraðið á Húsavík

  • Hvað er leikjadjamm? – Ávarp frá stofnanda Game Makers Iceland
  • Sett í gang: Húsavík leikjadjamm 2026 – Steingerður Lóa 
  • Þema leikjadjammsins kynnt: Hvalir, hafið og Húsavík – TBD

13:30 – 16:00 Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 1

  • Leikjafræði 101
  • Verkfærakista leikjadjammsins
  • Hugarflug og hönnunarvinna

16:00 – 18:00 Ör-erindi og pizzapartý

  • Örerindi frá frumkvöðlum

Laugardagur 19. september

9:00 – 12:00 Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 2

  • Leikjafræði 101 frh.
  • Unnið að útfærslum og prototýpum undir handleiðslu mentora

12:00 – 13:00 – hádegishlé 

 

13:00-16:00 – Leikjadjamm – vinnustofa, hluti 3

  • Leikjafræði 101 frh
  • Klárum leikinn okkar, útbúum kynningu

16:00 – 17:00 – hlé

17:00 – 19:00 – takk og þangað til næst!

  • Kynningar á uppskeru helgarinnar
  • Loka erindi – Leikjaheimurinn á Íslandi, Halldór Snær Kristjánsson

Samstarfsaðilar