Svona var hönnunarþingið ári 2023
This is how the DesignThing was 2023
Agenda items at the event where:
Fyrsta og þriðja ár vöruhönnunardeildar LHI
verður með opna vinnustofu.
Heimsþekktur ítalskur hönnuður búsettur í Reykjavík sýnir verk sín.
Öllum hnútum kunnug er þverfaglegt verkefni sem skoðar táknræna vídd reipisins í norrænni samtímamenningu.
Tinna Gunnarsdóttir fyrrum prófessor við Listaháskóla Íslands sýnir vörur sínar
Agustav sérhæfir sig í húsgögnum framleidd með endingargildi að leiðarljósi. AGUSTAV vinnur með heildstætt hönnunar-og framleiðsluferli þar sem form og notagildi kallast á.
Hanna Dís sýnir verk sín sem staðsett eru á landamærum hönnunar, listar og handverks.
Hin sænska Petra Lilja talar um doktorsverkefnið sitt “Mineral matterings – a philosophical take on the designers relation to their material”
Jón Helgi útskrifaðist sem vöruhönnuður frá LHÍ árið 2012 og tók síðan master í samspilshönnun (e. interaction design) frá háskólanum í Malmö 2015.
IHANNA HOME hannar og framleiðir hágæða hönnunarvörur með grafísku ívafi. Innblásturinn kemur úr okkar nærumhverfi.
Hin virta hönnunarstofa Aalto Aalto frá Finnlandi segir okkur frá verkefnum sínum.
Theodóra lauk mastersnámi í vöruhönnun frá The Royal College of Art í London árið 2015 og BA prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2012. Hún hefur frá útksrift unnið í London að eigin verkefnum ásamt því að vinna fyrir aðra hönnuði,
Sigurjón sest með kaffibolla á Stéttinni og fjallar um mikilvægi vöruhönnunar og áhrif hennar á daglegt líf okkar.
Hönnuðurinn Ragna Ragnarsdóttir leitast við að kanna möguleika í framleiðsluferlinu sem geta leitt til einstakrar útkomu, hvort sem um er að ræða smávöru, skúlptúra eða húsgögn.
Hönnunarspurningar fyrir lengra komna.
Hugdetta sýnir Sweet Salone og fleira í sýningarsal í Svörtuborg í Kaldakinn og á samsýningu á Stéttinni Húsavík
Stefán Pétur vöruhönnuður fjallar um stöðu gervigreindar og framtíð í tengslum við hönnun.
Samnorræna hönnunarteymið 1+1+1 sýnir þrjá nýja muni.
Anna Diljá er sjálfstæður hönnuður sem sérhæfir sig í listrannsóknum og upplýsingahönnun. Hún verður með fyrirlestur um verkefnið sitt „Höf á tímamótum”
Elín Margot er hönnuður, rannsakandi og kennari. Hönnunarstarf hennar beinist að því að skapa hluti og aðstæður sem setja spurningarmerki við núverandi samfélag okkar og kanna aðra framtíð.
Hönnunarmerkið Fólk er nýsköpunarfyrirtæki stofnað árið 2017 til að ýta undir hönnun og framleiðslu sem styður sjálfbærni og hringrás hráefna auk þess að vera stökkpallur fyrir íslenska hönnuði á erlendri grundu.
Anna Þórunn vöruhönnuður sýnir vörur sínar sem innblásnar eru af upplifunum og tilfinningum.
Rúna Thors lektor í vöruhönnun verður með kynningu um vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands.
Hönnuðir standa upp og lýsa ýmsum verkefnum sem mistókust eða klúðruðust á einhvern hátt. Á klúðurkvöldinu fá hlustendur að hlýða á hvað klúðraðist í ferlinu og læra af mistökum annara.
Flétta er hönnunarfyrirtæki þar sem unnið er með endurnýtt hráefni og staðbundna framleiðslu
Leikandi form, nýskapandi hönnun og endurnýtt hráefni úr byggingariðnaði sameinast í afurðum ARKITÝPU, sem eru húsgögn með margþætta nýtingu og áherslu á hringrásarhönnun í efnisvali.